Gylfi Snær: "Hvað verður amma gömul á morgun?"0 | 15.4.2010 01:00:21 #
Mamma: "58 ára"
Pétur Ingi "Vá mamma, þú ert alveg að ná henni, þú ert sko tuttugu og eitthvað!"
Kristófer: "Mamma mín, hún er alltaf að keyra allsber..."
Gylfi Snær: "Sammi af hverju dimmir svona snemma?"
Pétur Ingi: "Það er að rökkva..."
Forsíða
Sætu systkinin í Dvergabakkanum
$NavigationBar$
***ATH! Breytt lykilorð, ekki vera feimin við að senda mail á beggayr@hotmail.com eða samuelsamuels@simnet.is ef þið viljið kíkja á myndaalbúmið! ***
Elstur er Gylfi Snær...

Ég fæddist á sjúkrahúsinu á Akranesi 17.feb 2003 kl 16:27 og er því vatnsberi...eins og pabbi! Ég fæddist 15,5 merkur og 51 cm, semsagt stór og myndarlegur strákur. Ég fæddist með mikið dökkt hár og gráblá augu en núna er ég alveg orðinn ljóshærður! Ég er líka með rosa sæta spékoppa...algjör sjarmör :) Ljósmóðirin sem tók á móti mér heitir Soffía Þórðardóttir en hún tók líka á móti pabba mínum :) Hún er alveg yndisleg.
Þegar ég fæddist sagði pabbi "þetta er strákur!" og mömmu brá ekkert smá af því að hún var eiginlega viss um að ég væri stelpa. Það héldu það nú flestir, en ég gabbaði þau aldeilis :)
Ég var skírður heima hjá ömmu og afa í Reykjavík, 13. apríl 2003. Ég fékk nafnið Gylfi Snær, Gylfi í höfuðið á afa mínum en Snær er bara útí loftið. Mömmu og pabba fannst það svo fallegt nafn og passa flott við. Amma Anna og amma Arndís voru skírnarvottar.
Svo er það hann Pétur Ingi...
Ég fæddist á sjúkrahúsinu á Akranesi þann 14. janúar 2004 kl 9:30. Ég var 16 merkur og 52 cm, stór og flottur strákur eins og stóri bróðir :) Ég fæddist með dökkt hár og gráblá augu en er orðinn ljóshærður eins og stóri bróðir! Ljósmóðirin sem tók á móti mér heitir Anna Lísa og hún er alveg frábær.
Naflastrengurinn var víst eitthvað að stríða mér, var vafinn utan um hálsinn og hjartslátturinn minn hrapaði þannig að mamma var drifin í keisara á síðustu stundu. Ég fékk smá gulu og var voða latur við að drekka í byrjun en var fljótur að hrista það af mér ;)
Ég var skírður heima hjá ömmu og afa í Suðurhólum þann 04.04.04 og fékk nafnið Pétur Ingi. Ingi er í höfuðið á langafa mínum sem hét Ingólfur en var kallaður Ingi þegar hann var strákur. Skírnarvottarnir mínir voru Jenný og Guðný frænkur mínar.
Yngst er svo Anna Rakel

Ég fæddist á Sjúkrahúsinu á Akranesi þann 20.des. 2005 kl 00:47. Það bjóst enginn við mér fyrr en í kringum áramót, en ég ákvað að drífa mig bara fyrir jól ;) Ég var 14 merkur og 50,5 cm, bara alveg mátulegasta dama! Ég fæddist með dökkt hár og dökk augu. Ljósmóðirin sem tók á móti mér heitir Hafdís Rúnarsdóttir og er algjör engill.
Fæðingin gekk vonum framar og við mamma vorum á spítalanum fram á þorláksmessu. Fínt að koma svona beint í jólin bara ;)
Ég var skírð í Suðurhólum hjá ömmu og afa 26 mars og fékk nafnið Anna Rakel. Anna er í höfuðið á ömmu minni en mömmu og pabba fannst Rakel fallegt nafn og passa flott við. Skírnarvottarnir mínir voru afi Gylfi og Iðunn Dögg vinkona hennar mömmu.
Foreldrar okkar heita Aðalberg Pétursson (´77) og Berglind Ýr Gylfadóttir (´80). Við búum hjá mömmu okkar og Samma kærastanum hennar í Reykjavík. Sammi á 8 ára stelpu sem heitir Matthildur Inga og 2 ára strák sem heitir Kristófer Fannar. Við förum reglulega til pabba okkar en hann býr á Akranesi.
Matthildur Inga 
Ég fæddist á landspítalanum þann 13. nóvember 1999. Ég var 17 merkur og 52 cm þegar ég fæddist, stór og myndarleg stelpa.
Ég var skírð í Seljakirkju þann 28.nóvember 1999. Ég heiti Matthildur í höfuðið á móðurömmu minni og Inga í höfuðið á ömmu Ingibjörgu sem er föðuramma mín.
Kristófer Fannar 
Ég fæddist á landsspítalanum þann 17.september 2005. Ég var tæpar 15 merkur og 51 cm þegar ég fæddist.
Ég var skírður í Seljakirkju þann

Sigurjón Nói
Heiðar Ares og Ingibjörg Ellen
Andri Páll hetja
Mikael
Ísak og Bóas
Andri Þór
Jóhanna Arna
Hulda Eir
Viðar Snær, Dagur Kári og Arna Katrín
Tómas Bent
Maríus Alvin
Arnór Sindri, Tristan Máni og Aníta Líf
Ægir Örn og Lilja Karen
Arnar Geir og Katla María
Birna Marija
Emelía Hrönn
Hafdís Huld 
Núna er/u...
Kæru systkini og foreldrar. Sendum ykkur kærar jólakveðjur. Með von um bjarta hátíð og gæfuríkt nýtt ár :* knús og kossar úr Garðabænum Gunnur, Kári og Gunna ;o)Gunnur, Kári og Guðrún Ágústa | 0 | 22.12.2009 20:34:02 #
-
til hamingju með nafnið á nýjasta fjölskyldumeðliminum :o) kveðja Gunnur og coGunnur|10.3.2009 12:40:35
-
Til hamingju með nafnið Samúel Jón Samúelsson og krakkar til hamingju með litla bróðir!! kveðja af skaganum Jóhanna og coJóhanna Símonardóttir|8.3.2009 21:17:08
-
Til hamingju með 6 ára afmælið Gylfi Snær, vá hvað þú ert orðinn stór bara að fara í skólann í haust! hafðu það gott og ég veit þú skemmtir þér mjög vel í dag! kveðja af skaganum Jóhanna og krakkarnirJóhanna Símonardóttir|17.2.2009 21:42:33
-
Til hamingju með daginn gylfi sæti:* kossar og knus fra skaga til ykkarandri páll og sandra|17.2.2009 20:52:52
-
Elsku Gylfi minn, fyrirgefðu rugluðu ömmu þinn en auðvitað er afmælið ekki fyrr en 17 febrúar.Amma Dísa.|14.2.2009 10:54:07
-
Elsku Gylfi Snær ! Innileg til hamingju með 6 ára afmælið. Knús frá ömmu Dísu.Amma Dísa|14.2.2009 10:45:49
-
æðisleg systkini :o)Gunnur og co|12.2.2009 13:37:08






